Upp hefur komið hópsmit eða klasasmit á höfuðborgarsvæðinu. Þetta varð ljóst í dag.
Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir í samtali við mbl.is að töluverðar annir hafi verið í dag við að flytja fólk með staðfest smit í farsóttarhús.
Tölur um fjölda greindra smita verða ekki birtar fyrr en á morgun.
Alls greindust fjögur kórónuveirusmit innanlands í gær en báða dagana á undan voru þau átta.