Sundlaugar landsins opnaðar að nýju

Það viðrar vel til sundiðkunar á þessum fallega desembermorgni.
Það viðrar vel til sundiðkunar á þessum fallega desembermorgni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sundlaugar landsins verða opnaðar að nýju í dag og eflaust margir sem hafa beðið þessa dags með óþreyju. Jafnframt verður slakað á reglum varðandi fjölda í verslunum og börn fædd árið 2005 og yngri þurfa ekki að bera grímur í skólum lengur.

Þetta er meðal þess sem breyttist á miðnætti er breytingar á sóttvarnaráðstöfunum tóku gildi. Á höfuðborgarsvæðinu verður fyrstu gestum hleypt inn klukkan 6:30 og þegar blaðamaður ræddi við starfsmenn sundlauga í morgun var allt klárt fyrir opnun. Á Akureyri opnar laugin klukkan 6:45.

Um varfærnar tilslakanir á reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar er að ræða og gilda breytingarnar til 12. janúar. Reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar verður að mestu óbreytt til áramóta en gert er ráð fyrir að kynna fljótlega nýjar reglur um skólastarf sem eiga að taka gildi 1. janúar 2021.

Jón Ferdinandsson starfsmaður Árbæjarlaugar hafði í nægu að snúast í …
Jón Ferdinandsson starfsmaður Árbæjarlaugar hafði í nægu að snúast í gær við að gera allt klárt fyrir opnun ásamt samstarfsfólki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breytingarnar eru að mestu í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis en sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu hafa til að mynda verið lokaðar frá 7. október.

Töluverð fjölgun daglega greindra smita varð í lok nóvember en síðustu daga hefur tilfellum fækkað aftur og þeir sem hafa greinst hafa flestir verið í sóttkví. „Því er ljóst að sæmileg tök hafa náðst á faraldrinum á þessari stundu en jafnframt má segja að staðan á þessum tímapunkti er viðkvæm þar sem að brugðið getur til beggja vona,“ segir í minnisblaði sóttvarnalæknis.

Laugardalslaugin var opnuð að nýju í morgun eftir að hafa …
Laugardalslaugin var opnuð að nýju í morgun eftir að hafa verið lokuð frá því í byrjun október. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helstu breytingar á samkomutakmörkunum

  • Fjöldatakmörkun: miðast áfram við 10 manns en með ákveðnum undantekningum
  • Börn: Ákvæði um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2005 og síðar.
  • Verslanir: Allar verslanir mega taka á móti 5 manns á hverja 10 m² en að hámarki 100 manns.
  • Veitingastaðir: Heimilt verður að taka við 15 viðskiptavinum í rými. Heimilt verður að hafa opið til kl. 22.00 en ekki má taka á móti nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00.
  • Sund og baðstaðir: Heimilt verður að hafa opið fyrir allt að 50% af hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi.
  • Íþróttir ÍSÍ: Íþróttaæfingar einstaklinga sem fæddir eru 2004 og fyrr eru heimilar með og án snertingar í íþróttum innan ÍSÍ í efstu deild. Æfingar afreksfólks í einstaklingsbundnum íþróttum eru heimilar. Æfingar sem krefjast snertingar innan bardagaíþrótta eru þó ekki heimilar.
  • Aðrar íþróttir: Öllum er heimilt að stunda skipulagðar æfingar utandyra sem krefjast ekki snertingar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir verða heimilir með allt að 30 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Heimilt verður að taka á móti allt að 50 sitjandi gestum og þeim skylt að nota grímu og allt að 100 börnum fæddum 2005 og síðar. Hvorki hlé né áfengissala heimil. Sæti skulu númeruð og skráð á nafn.
  • Jarðarfarir: Hámarksfjöldi í jarðarförum verður 50 manns.
  • Gildistími: Framantaldar breytingar gilda frá 10. desember næstkomandi til 12. janúar 2021.
Nemendur og kennarar hafa borið grímur undanfarnar vikur í efri …
Nemendur og kennarar hafa borið grímur undanfarnar vikur í efri bekkjum grunnskóla en í dag þurfa nemendur ekki að nota grímur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breytingar á takmörkunum skólastarfs

  • Ákvæði um blöndun og hámarksfjölda leikskólabarna felld brott. Með þessu móti geta leikskólar aðlagað starfsemi sína betur yfir hátíðirnar þar sem barnahópar eru gjarna sameinaðir milli deilda eða jafnvel leikskóla.
  • 2 metra regla og grímuskylda fellur niður hjá  nemendum í 8. til 10. bekk í samræmi við reglugerð um takmarkanir á samkomum.
  • Lestrarrými í framhaldsskólum og háskólum opnað fyrir allt að 30 nemendur.
  • Reglur um skólastarf sem taka gildi frá og með 1. janúar 2021 verða kynntar fljótlega.
  • Gildistími: Framantaldar breytingar gilda frá 10. desember til 31. desember.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert