Bóluefni kemur til landsins um áramótin

Búið er að gera samning við Pfizer.
Búið er að gera samning við Pfizer. JUSTIN TALLIS

Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa undirritað samning við bóluefnaframleiðandann Pfizer. Samningurinn kveður á um 170.000 skammta til Íslands sem dugir fyrir 85.000 manns. Gert er ráð fyrir að Lyfjastofnun Evrópu veiti lyfinu markaðsleyfi í síðasta lagi 29. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Áætlað er að fyrstu skammtarnir frá Pfizer berist um áramót, alls rúmlega 21.000 skammtar sem duga fyrir 10.600 manns. Líklegt er að notuð verði fleiri en ein tegund bóluefna hér á landi. Gera má ráð fyrir að bóluefnin kunni að henta ólíkum hópum með mismunandi hætti sem getur haft áhrif á forgangsröðunina. 

280 þúsund fá bóluefni

Tryggðir hafa verið samningar af Íslands hálfu við tvo bóluefnaframleiðendur og sá þriðji er í burðarliðnum. Samtals tryggja þeir bóluefni fyrir rúmlega 280 þúsund einstaklinga. Á vegum sóttvarnalæknis er unnið að skipulagningu og samræmingu bólusetningar á landsvísu og stefnt er að því að birta áætlun um bólusetningu í næstu viku.

Nú er að þróun á tölvukerfi til að styðja við bólusetningar. Kerfið byggir á því kerfi sem þróað hefur verið fyrir skimanir á landamærum en er núna notað fyrir nær allar COVID-19 sýnatökur hér á landi. Kerfið verður notað til að bjóða stærri hópum í bólusetningu með skilaboðum í Heilsuveru og strikamerkjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert