Leggur til að Gagnaveitan verði seld

Katrín Atladóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að borgin fari að …
Katrín Atladóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að borgin fari að huga að sölu Gagnaveitunnar. mbl.is/Eggert

Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, telur að borgin ætti að huga að sölu Gagnaveitu Reykjavíkur við fyrsta tækifæri, þar sem hvergi sé fjallað um beinan rekstur netþjónustu í lögum um skyldur sveitarfélaga. Þessar hugmyndir viðrar Katrín í pistli sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

„Það er því ekki hlutverk borgarinnar, né fyrirtækja í hennar eigu, að veita þá þjónustu. Ekki frekar en að borgin eigi að sjá borgurunum fyrir matskeið af lýsi á morgnana, eins hollt og það er nú samt,“ skrifar Katrín.

Hún bendir á að íslensk sveitarfélög hafi heimild til að sinna ýmsu öðru en lögbundnum verkefnum og það sé sannarlega raunin hjá Reykjavíkurborg, þar sem innan samstæðu borgarinnar (B-hluta) sé að finna fyrirtæki á borð við Faxaflóhahafnir, Félagsbústaði, Malbikunarstöðina Höfða hf., Strætó bs. og Sorpu bs., auk fjölda dótturfélaga innan Orkuveitunnar, þ.á m. Gagnaveitu Reykjavíkur.

Sorpa „risastórt lóð um háls hins syndandi skattgreiðanda“

Telur Katrín einnig að borgin ætti að losa sig við eignarhlut sinn í Sorpu – sorphirða sé víða boðin út á Íslandi þar sem sérhæfð fyrirtæki bjóða þá þjónustu á samkeppnismarkaði, „nema auðvitað þar sem sveitarfélagið heldur uppi einokunarstarfsemi,“ skrifar Katrín og heldur áfram:

„Sorpa hefur reynst eitt risastórt lóð um háls hins syndandi skattgreiðanda og gæti hvenær sem er orðið óbærilega þungt,“ skrifar Katrín.

Lýkur hún pistlinum á þessum orðum:

„Almennt má segja að því minni rekstur sem er á könnu hins opinbera, því minni líkur eru á því að skatt- og útsvarsgreiðendur sitji uppi með risastóra reikninga eftir óráðsíu og mistök. Það er því áríðandi að losna við rekstur eins og Gagnaveituna og Sorpu úr miðstýringu ráðhússins. Fólk mun eftir sem áður geta keypt sér aðgang að „opnu aðgangsneti“ og losnað við sorpið um leið og það tekur inn sitt eigið lýsi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert