„Enginn segir Alþingi fyrir verkum. Enginn!“

Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins.
Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Hari

Mér er ekki ljóst hvernig Mannréttindadómstóll Evrópu getur fjallað með þessum hætti um störf Alþingis,“ sagði Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins, á Alþingi í dag.

Vísaði hann til dóms yfirdeildar dómstólsins sem féll 1. desember, þar sem meðal annars var  vikið að dómum Hæstaréttar Íslands og málsmeðferð Alþingis við afgreiðslu málsins.

„Dómurinn sýnist einkum snúast um hvort rökstuðningur Hæstaréttar fyrir því að dómarar Landsréttar séu skipaðir sem lögmætir handhafar dómsvalds í lagalegum og stjórnskipulegum skilningi hafi verið fullnægjandi,“ sagði Ólafur.

Athygli vaki að í dómi yfirdeildarinnar sé fjallað um hvernig við hæfi sé að Alþingi Íslendinga greiði atkvæði um tiltekið mál.

Hver og einn þingmaður gat kallað eftir annarri framkvæmd

Ólafur sagði að sér væri ekki ljóst hvernig dómstóllinn gæti fjallað með þessum hætti um störf þingsins.

„Hver og einn alþingismaður gat kallað eftir annarri framkvæmd. Þetta þýðir að atkvæðagreiðslan fór fram samkvæmt ákvörðun Alþingis, ákvörðun lýðræðislega kjörinna fulltrúa á fullvalda löggjafarsamkomu þjóðarinnar.“

Ólafur hélt áfram:

„Mér er tjáð af kunnugum að leitun muni að dæmi um að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi talað með þvílíkum hætti til löggjafarþings í Evrópu. Má ég leyfa mér að minna á að Ísland er friðsælt ríki og farsælt. Ísland er lýðræðisríki og réttarríki. Ísland er menningarríki og hér býr menntuð og hæfileikarík þjóð. Ísland er fullvalda ríki með djúpar rætur í alþjóðlegu samstarfi,“ sagði hann.

Allir þingmenn ættu að sameinast um að mótmæla

„Mér er ekki ljóst hvernig Mannréttindadómstóll Evrópu getur talað til æðstu stofnunar fullvalda ríkis með þeim hætti sem gert er í umræddum dómi.

Herra forseti. Eins og sagt var á forsetastóli fyrir skemmstu: Enginn segir Alþingi fyrir verkum. Enginn. Ég tel að allir alþingismenn ættu að sameinast um að mótmæla því hvernig talað er til Alþingis í dómi Mannréttindadómstólsins og það á fullveldisdegi Íslendinga. Ég mótmæli því fyrir mitt leyti.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka