Áætlun Pfizer um afhendingu bóluefna hefur raskast og ljóst að færri skammtar koma til Íslands um áramót en samningar gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins.
Miðað var við að Ísland fengi þá rúmlega 21.000 skammta en þeir verða um 10.000. Í janúar og febrúar er von á um 17.500 skömmtum til viðbótar. Samtals dugir þetta bóluefni fyrir tæplega 14.000 manns.
Nánari upplýsingar um afhendingu bóluefnis Pfizer á fyrsta ársfjórðungi næsta árs ættu að liggja fyrir á næstu dögum.
Auk samnings við Pfizer hefur Ísland lokið samningi við bóluefnaframleiðandann Astra Zeneca og samningsgerð við Janssen er á lokastigi. Samtals tryggja samningar við þessa framleiðendur auk Pfizer bóluefni fyrir 281.000 einstaklinga. Samningsgerð er einnig hafin við lyfjaframleiðandann Moderna segir ennfremur í frétt ráðuneytisins.