Geta í fyrsta lagi snúið heim á morgun

Að minnsta kosti þrjár skriður féllu í byggð í gær. …
Að minnsta kosti þrjár skriður féllu í byggð í gær. Mun fleiri stöðvuðust í hlíðinni. Ljósmynd/Aðsend

Á annað hundrað Seyðfirðinga þurfa áfram að vera utan heimila sinna vegna hættu á skriðuföllum. Með hliðsjón af veðurspá er gert er ráð fyrir að þeir geti ekki snúið aftur heim fyrr en í fyrsta lagi á morgun. 

Staðan er þó metin reglulega og er næsta tilkynning lögreglu er fyrirhuguð um klukkan 17:00 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

„Samkvæmt veðurspá dagsins verður úrkomulítið á Seyðisfirði í dag en bætir svo í með kvöldinu og talsverðri rigningu spáð á morgun. Þeir íbúar sem hug hafa á að sækja nauðsynjar í hús sín á rýmingarsvæði, kanna ástand og eftir atvikum gera ráðstafanir, eru hvattir til að gefa sig fram við vettvangsstjórn í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði. Þar verða frekari upplýsingar veittar og aðstoð við að fara inn á rýmingarsvæðið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka