Ekki hafa fallið fleiri aurskriður á byggð á Seyðisfirði í nótt en hættuástandi var lýst yfir í bænum á tólfta tímanum í gærkvöldi. Á annað hundrað íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín í gær og gistu þeir hjá vinum og ættingjum í nótt. Áfram er spáð úrkomu á Austfjörðum.
Enginn gisti í fjöldahjálparstöð Rauða krossins á Seyðisfirði í nótt en hún verður opin í dag þannig að fólk getur leitað þangað eftir aðstoð og upplýsingum. Eins ef fólk, sem hefur þurft að yfirgefa heimili sín, þarf að sækja nauðsynjar þá verður veitt aðstoð við það.
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, segir að í birtingu verði aðstæður skoðaðar. Ekki liggur fyrir hversu lengi hættuástandið varir en ólíklegt er að það breytist á meðan úrkoman er jafn mikil og raun ber vitni.
Um 50 hús voru rýmd undir Botnabrún í gær. Húsin voru rýmd að skriður tóku að falla úr hlíðinni síðdegis í gær. Síðan hafa fleiri skriður fallið sem meðal annars hafa náð niður í garða í efri hluta bæjarins á svæðum sem voru rýmd. Jarðvegur í neðri hluta hlíða er orðinn vatnsmettaður eftir miklar rigningar síðustu vikuna og spáð er áframhaldandi NA-átt með úrkomu sem verður líklega að mestu snjókoma til fjalla.
Um 120 manns yfirgáfu heimili sín í gær og enn er talin hætta á skriðuföllum. Gripið var til þessara aðgerða til þess að draga úr líkum á slysum á fólki en enn má búast við eignatjóni. Enn gengur aur úr skriðusárinu í Botnum sem hefur náð inn í bæinn. Skriða féll síðast rétt um tíuleytið í gærkvöldi en ekki er talið að hún hafi valdið miklum skemmdum.
Óvissustigi vegna skriðuhættu var lýst yfir á Austfjörðum í gær og er enn í gildi. Auk Seyðisfjarðar hafa fallið skriður neðarlega í hlíðum á Eskifirði og við utanverðan Fáskrúðsfjörð. Kristján segir að áfram verði fylgst vel með á þessum stöðum.