Allar hendur upp á dekk

Slökkviliðsmenn að störfum fyrir austan.
Slökkviliðsmenn að störfum fyrir austan. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristján Kristjánsson, slökkviliðsstjóri á Seyðisfirði, var ásamt sínum mönnum að undirbúa dælingu nálægt höfninni þegar mbl.is bar að garði. Sagði hann að helsta hlutverk slökkviliðsins á þessari stundu að reyna að koma í veg fyrir tjón á innviðum. Tíminn verði að leiða í ljós hvort lagnakerfi bæjarins hafi skaðast. 

„Við erum einfaldlega að hjálpa dælukerfinu sem er orðið yfirfullt,“ segir Kristján. Að sögn hans hefur slökkviliðið mestmegnis verið í því að dæla úr húsum þar sem kjallarar voru sums staðar orðnir yfirfullir af vatni. Eins að dæla vatni úr görðum við hús til að reyna að koma í veg fyrir tjón. 

Kristján Kristjánsson slökkviliðsstjóri.
Kristján Kristjánsson slökkviliðsstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristján segir að ástandið sé þannig að í raun séu allar hendur upp á dekk. Menn fari í þau störf sem þurfi að sinna. 

„Við vitum ekkert hvort það verður mikið tjón af þessu í kerfum bæjarins. Við tökum bara daginn í dag og svo kemur morgundagurinn með sín verkefni og þá kemur kannski eitthvað í ljós,“ segir Kristján. 

Spurður hvort að beygur sé í fólki þá segir Kristján að menn horfi frekar á þetta sem verkefni sem þurfi að leysa. „Þetta er ekkert gaman en þetta er bara verkefni sem þarf að leysa,“ segir Kristján. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka