Tollsamningur við ESB verði endurskoðaður

Fram kemur að forsendur samningsins hafi breyst.
Fram kemur að forsendur samningsins hafi breyst. mbl.is/Sigurður Bogi

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur óskað eftir því við Evrópusambandið að tollasamningur Íslands og ESB um landbúnaðarvörur verði endurskoðaður.

Í tilkynningu kemur fram að úttekt sýni að forsendur samningsins hafi breyst og ójafnvægi sé á milli samningsaðila, íslenskum útflytjendum í óhag. 

Markmið tollasamningsins frá 2015 er að skapa tækifæri til aukinna viðskipta milli Íslands og ESB en hann hvílir á þeirri forsendu að jafnvægi sé á milli samningsaðila, segir í tilkynningunni.

Fyrr á árinu samþykkti ríkisstjórnin að utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skyldu gera úttekt á hagsmunum Íslands af óbreyttum samningi með hliðsjón af þeim breytingum sem orðið hafa frá gildistöku hans. Úttektin var unnin í nánu samráði við hagsmunaaðila, forsvarsmenn bænda og afurðastöðva, verslunar og þjónustu, verkalýðshreyfinguna og samtök neytenda.

„Niðurstaða úttektarinnar er að verulegt ójafnvægi ríkir í samninginum. Nýting íslenskra útflytjenda á kvótum til ESB er í flestum tilfellum lítil eða engin á meðan tollkvótar til innflutnings frá ESB hafa nær allir verið fullnýttir og umtalsvert magn flutt inn utan kvóta. Efnahagslegt mat utanaðkomandi ráðgjafa frá síðastliðnu vori og vitnað er til í úttektinni staðfestir þetta,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert