3000 skammtar af bóluefni á viku

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Afhendingaráætlun á bóluefni frá Pfizer hér á landi liggur fyrir, fyrir fyrsta ársfjórðung 2021. Að meðaltali munu berast til Íslands 3.000 skammtar á viku af bóluefni frá Pfizer frá 27. desember og út mars.

Bóluefni frá AstraZeneca og Moderna mun að öllum líkindum einnig vera tilbúið til afhendingar á fyrsta ársfjórðungi. Þetta sagði Svandís Svavars­dótt­ir heilbrigðisráðherra í ræðu sinn­i á þing­fundi í dag. Þar flutti hún munnlega skýrslu um horfur um afhendingu bóluefnis vegna Covid-19. 

Hér er um að ræða vöru sem að er meiri eftirspurn eftir heldur en nokkurri vöru á nokkrum tíma í sögunni. Það er að segja bóluefni gegn Covid-19 sem hvert einasta mannsbarn horfir eftir og bíður eftir með eftirvæntingu,“ sagði Svandís. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert