Leikfélag Reykjavíkur ses. og Kristín Eysteinsdóttir þáverandi leikhússtjóri Borgarleikhússins voru sýknuð af kröfum Atla Rafn Sigurðssonar leikara í Landsrétti í dag.
Leikfélagið var dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur 30. október 2019 til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir króna í bætur og eina milljón króna í málskostnað vegna máls sem hann höfðaði sökum uppsagnar hans hjá leikfélaginu.
Ekki þótti sýnt fram á að orð Kristínar í fjölmiðlum í kjölfar fréttaflutnings af uppsögn Atla hafi falið í sér meingerð gegn Atla. Þannig þótti ósanna að LR ses. og Kristín hafi stuðlað að umfjöllun sem uppsögnin hlaut í fjölmiðlum.
Þá féllst Landsréttur á að uppsögnin hafi rúmast innan þerrar heimilda stjórnendur leikhússins höfðu samkvæmt ráðningar- og kjarasamningi.
Ekki var fallist á málflutning Atla Rafns um að skilyrði uppsagnar hans væri að meðferð málsins væri samkvæmt reglugerð 1009/2015, með stoð í lögum 46/1980 eða eftir handbók leikhússins.
Vaxtarkröfum Atla var vísað frá Landsrétti.
Hver málsaðili ber eigin kostnað að rekstri málsins í fyrir Landsrétti og málskostnaður fellur niður í héraði og í Landsrétti.