Helmingur bæjarbúa fær að fara heim

Rúmur helmingur bæjarbúa getur snúið aftur til síns heima.
Rúmur helmingur bæjarbúa getur snúið aftur til síns heima. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls hafa nú 305 íbúar snúið til síns heima á Seyðisfirði en 276 íbúar bíða þess enn.

Ofanflóðasérfræðingar Veðurstofu Íslands hafa, ásamt samstarfsaðilum, metið hættu á frekari skriðuföllum á tilteknum svæðum á Seyðisfirði og gildir áfram rýming um þau.

Þeim íbúum sem búa utan þeirra svæða er heimilt að snúa aftur.

Þá hefur viðbúnaðarstig almannavarna í firðinum verið fært af neyðarstigi á hættustig en fljótlega verður opnuð þjónustumiðstöð almannavarna fyrir íbúa á Seyðisfirði, sbr. 14. gr. laga um almannavarnir.

Samkvæmt ákvæðinu er rríkislögreglusjtóra heimilt, þegar hættu ber að garði eða hún um garð gengin, að stofna tímabundið þjónustumiðstöð vegna tiltekinnar hættu eða hættuástands.

Verkefni þjónustumiðstöðvar felast meðal annars í upplýsingagjöf til almennings og þjónustu við þá aðila sem hafa orðið fyrir tjóni og hin tiltekna hætta hefur haft önnur bein áhrif á. Auk þess annast þjónustumiðstöðin, í samvinnu við hlutaðeigandi yfirvöld og stofnanir, samskipti við fjölmiðla vegna aðgerða sem gripið er til hverju sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert