Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur hefur samþykkt framkvæmdaáætlun um gerð göngu- og hjólastíga í borginni á árinu 2021.
Heildarkostnaður vegna stígaframkvæmda á næsta ári er áætlaður 1.775 milljónir króna og heildarlengd á stígum 10,3 kílómetrar. Hluti framkvæmdanna verður greiddur af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.