Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar enn. Tilkynningum fjölgaði á milli mánaða, í nóvember, en það sem af er ári hafa borist 13% fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili tvö síðustu ár.
Skráð voru 683 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í nóvember og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir nóvember 2020. Þegar á heildina er litið var að sjá fækkun í flestum brotaflokkum.
Tilkynningum um þjófnaði fækkaði sem og tilkynningum um innbrot en tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fjölgaði.
Skráð ofbeldisbrot voru álíka mörk í október og nóvember. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi eða hótað um ofbeldi fækkaði á milli mánaða.
Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða en fimm stórfelld fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í nóvember. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði lítillega á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.
Í nóvember voru skráð 541 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Það sem af er ári hafa verið skráð um 19 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.
Afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu má lesa hér.