Ríkislögreglustjóri segir ekki hættu á ferðum

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er á Seyðisfirði.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er á Seyðisfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að ekki sé litið svo á að hætta sé á ferðum vegna hótunar í garð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Katrín var tekin afsíðis í fylgd sérsveitarmanns í miðri skoðunarferð um Ferjuhúsið á Seyðisfirði skömmu eftir hádegi í dag.

„Það er engin hætta á ferðum að okkar mati, alls ekki,“ segir Sigríður. „Heimsóknin gengur mjög vel og við lítum svo á að ástandið sé gott og tryggt.“

Aðeins liðu um tíu mínútur þar til hún sneri aftur, ræddi við blaðamenn og hélt því næst í fjöldahjálparmiðstöðina eins og ekkert hefði í skorist. Katrín hefur ekki viljað ræða málið við fjölmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert