Miðflokkurinn vill að þing komi saman

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.

Þingflokkur Miðflokksins segir nauðsynlegt að þingheimur ræði þá stöðu sem uppi er um kaup bóluefna til Íslands. Þingmenn Miðflokksins fer fram á að Alþingi verði kallað saman eigi síðar en 28. desember nk. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingflokknum í dag. 

„Í ljósi þeirrar óvissu  sem nú er uppi varðandi komu bóluefna vegna COVID-19 hingað til lands er nauðsynlegt að þingheimur fái tækifæri til að ræða málið við ríkisstjórnina.  Undanfarna daga hafa birst mjög misvísandi upplýsingar um þá samninga sem gerðir hafa verið og ekki síður hvernig bólusetningu verður háttað. Þar vegast upplýsingaóreiða og ráðaleysi stjórnvalda á,“ segir í tilkynningu flokksins. 

Í yfirlýsingunni segir að ríkisstjórnin verði að veita áreiðanlegar og nákvæmar upplýsingar um hver raunveruleg staða er á samningum um virk og nothæf bóluefni og hvernig bólusetning þjóðarinnar mun ganga fyrir sig og hvenær þess er að vænta að þjóðlíf geti færst í hefðbundið ástand.

Á heimasíðu stjórnarráðsins er eftirfarandi upplýsingar að finna um stöðu á öflun bóluefnis: 


Ekki náðist í Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis, við vinnslu fréttarinnar til að fá viðbrögð við beiðni Miðflokksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert