Verðlaunaður fyrir námsárangur í verkfræði

Ingvar Þóroddsson, nemi í verkfræði fyrir miðri mynd. Á vinstri …
Ingvar Þóroddsson, nemi í verkfræði fyrir miðri mynd. Á vinstri hönd er Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, en á hægri Jón Atli Benediktsson rektor Háskólans. Ljósmynd/Aðsend

Ingvar Þóroddsson, nemi á þriðja ári í rafmagns- og tölvuverkfræði í Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti Ingvari styrkinn í aðalbyggingu Háskóla Íslands í vikunni.

Ingvar er fæddur árið 1998. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2018 og hlaut menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi og eftirtektarverðan árangur í listum og félagsstörfum. Hann hóf nám við Háskólann að loknu stúdentprófi og situr í nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðs.

Minningarsjóður Þorvald Finnbogasonar styrkir árlega efnilega nemendur í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í greininni. Styrkurinn er veittur þeim nemanda sem hefur hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi í verkfræði.

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert