Engar tölur á Covid.is næstu daga

Biðröð eftir sýnatöku.
Biðröð eftir sýnatöku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Engar tölur um fjölda kórónuveirusmita verða birtar á upplýsingasíðunni Covid.is í dag. Síðan verður næst uppfærð 28. desember, að því er kemur fram á síðunni.

Tölur verða heldur ekki birtar á síðunni frá 31. desember til 3. janúar.

Hvergi á landinu verður hægt að fara í sýnatöku vegna kórónuveirunnar á jóladag og á nýársdag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert