Fyrsta opinbera lag bandsins Systralags

Anna Gréta og Sigríður Hulda Sigurðardætur búa í Stokkhólmi.
Anna Gréta og Sigríður Hulda Sigurðardætur búa í Stokkhólmi. Ljósmynd/Aðsend

Hljómsveitin Systralag sendi nýlega frá sér lagið „Í desember“ og var það í hópi 10 laga sem komust áfram í Jólalagakeppni Rásar 2, en um 100 frumsamin lög bárust í keppnina. „Við erum mjög ánægðar með móttökurnar og þakklátar fyrir öll atkvæðin,“ segir Anna Gréta Sigurðardóttir, djasspíanóleikari og tónskáld, um viðbrögðin við fyrsta opinbera lagi Systralags, sem hún skipar ásamt Sigríði Huldu, systur sinni og söngkonu. „Það er gaman að hafa náð svona langt úr öllum þessum fjölda laga.“

Lagið var tekið upp í KMH studios í Stokkhólmi undir stjórn Markus Sjöbergs. Þær syngja lagið saman auk þess sem Anna Gréta leikur á píanó en Johan Tengholm spilar á kontrabassa.

Tónlist er systrunum í blóð borin en faðir þeirra er Sigurður Flosason saxófónleikari. Þær byrjuðu snemma að læra á hljóðfæri, Anna Gréta átta ára á píanó og Sigríður Gréta var á svipuðum aldri þegar hún byrjaði að læra á selló. Anna Gréta var lengi í kórskóla hjá Jóni Stefánssyni í Langholtskirkju en Sigríður er sjálflærð áhugasöngkona. „Við erum alltaf að góla eitthvað saman,“ segir Anna Gréta.

Á Nóbelsverðlaunahátíðinni

Systurnar hafa búið, lært og starfað í Svíþjóð undanfarin ár. Anna Gréta fór í nám í Stokkhólmi 2014 og hefur búið þar síðan, en hún hefur getið sér gott orð sem djasspíanóleikari og spilaði meðal annars á Nóbelsverðlaunaathöfninni fyrir skömmu. Sigríður Hulda flutti út 2015, brautskráðist með meistaragráðu frá Listaháskólanum Konstfack í Stokkhólmi 2017 og starfar sem grafískur hönnuður hjá virtri hönnunarstofu þar í borg. Báðar hafa þær fengið fjölmargar viðurkenningar og verðlaun. Anna Gréta fékk til dæmis Monica Zetterlund-verðlaunin 2019 og var tilnefnd til tvennra verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum sama ár, en var var útnefnd Bjartasta vonin á þeim vettvangi 2015. Sænska ríkisútvarpið tilnefndi hana vegna Jazzkatten-verðlaunanna 2018. Sigríður Hulda hefur unnið að ýmsum verkefnum sem hlotið hafa alþjóðlegar tilnefningar og hlaut gullverðlaun í nemendaflokki FÍT fyrir meistaraverkefni sitt 2018.

Anna Gréta segir að þær hafi gjarnan komið heim um jólin og í mörg ár hafi þær samið og flutt jólalög fyrir stórfjölskylduna og vini. „Þetta hefur verið okkar leið til þess að gera upp árið og grínast svolítið með fjölskylduna í leiðinni.“ Líðandi ár hafi verið allt öðruvísi en önnur ár fyrir alla vegna kórónuveirufaraldursins og textinn við jólalagið, sem hún samdi fyrir nokkrum árum, því haft almennari skírskotun. Þær hafi samið textann í sameiningu og hann snúist um það hvernig sé að koma heim um jólin, en nú bregði svo við að margir komist ekki vegna heimsfaraldursins og allir missi að mestu af dásemdinni sem textinn fjalli um; verslunarferðum í Kringluna, jóladjamminu og ilminum af skötunni, þótt þeim þyki hann ógeðslegur. „Við tengjum vel við þessa vanalegu jólastemningu en núna verðum við að láta okkur nægja að syngja lagið til að upplifa hana.“

Systurnar verða í faðmi fjölskyldunnar á Íslandi um jólin og reyndar verður Anna Gréta hér við upptökur á plötu fram í janúar. „Þetta verður mitt fyrsta sólóverkefni og ég er mjög spennt,“ segir hún.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 21. desember. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert