Málið til rannsóknar hjá lögreglu

Málið sem tengist því að ráðherra hafi verið í fjölmennu samkvæmi í gærkvöldi fer nú til hefðbundinnar rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Frekari upplýsinga um málið er ekki að vænta fyrr en eftir jól eða áramót, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, vísaði í tilkynninguna þegar mbl.is reyndi að ná af henni tali vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert