11 greindust með svokallað breskt afbrigði af Covid-19 á landamærunum skömmu fyrir jól. Fólkið var að koma frá Bretlandi, nema einn sem kom til landsins frá Danmörku.
Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna.
Hann sagði enn fremur að alls hefðu 13 greinst með breska afbrigðið hér og það er heldur meira en í mörgum öðrum löndum.
Rannsóknir sýna að afbrigðið geti verið allt að 70% meira smitandi en fyrri afbrigði veirunnar.
Þórólfur benti á að öll smit hér á landi væru raðgreind og það gæti skýrt fjöldann.
Alma Möller landlæknir sagði að svo virtist sem breska afbrigðið hefði óvenju margar stökkbreytingar.
Ekki er vitað hvort það hafi áhrif á bóluefni en forstjóri Biotech hefur sagt að ef svo illa vilji til að bólusetningin virki ekki á afbrigðið taki sex vikur að búa til ný bóluefni gegn afbrigðinu.