Mikið ónæði af flugeldum

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst fjöldi tilkynninga um hávaða og ónæði af flugeldum í öllum hverfum í gærkvöldi og nótt.

Þetta kem­ur fram í dag­bók lög­reglu vegna verk­efna henn­ar í gær­kvöldi og nótt.

Alls voru 68 mál skráð hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu frá 17 síðdeg­is til fimm í nótt.

Lögreglu bárust sex tilkynningar um heimilisofbeldi og voru sjö vistaðir vegna ýmissa mála í fangageymslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert