Nýr sendiherra Rússa á Íslandi

Mikhaíl V. Noskov, nýr sendiherra Rússa, afhenti Guðna erindisbréf.
Mikhaíl V. Noskov, nýr sendiherra Rússa, afhenti Guðna erindisbréf.

Skömmu fyrir áramót tók Guðni Th. Jóhannesson forseti á móti nýjum sendiherra Rússlands á Íslandi, Mikhaíl V. Noskov, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum.

Rætt var um tengsl Íslands við Rússland í áranna rás, og þar á undan við Sovétríkin, meðal annars mikilvægi skipalesta í seinni heimsstyrjöld og viðskipti á tímum kalda stríðsins, eins og segir á vef forseta.

Þá var rætt um íslenska hátækni í sjávarútvegi sem rússnesk fyrirtæki nýta sér í æ ríkari mæli. Rætt var um stöðu samkynhneigðra í Rússlandi og rakti sendiherra sjónarmið rússneskra stjórnvalda í þeim efnum. Þá var rætt um málefni norðurslóða og formennsku Íslands í norðurskautsráðinu frá 2019. Í maí á næsta ári tekur Rússland við formennsku í ráðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert