Páll Pálsson fasteignasali segir mjög hátt verð á lóðum og takmarkað framboð af nýjum íbúðum valda því að íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu er mun hærra en það þyrfti að vera.
Þá tefji seinagangur í stjórnsýslunni fyrir framkvæmdum sem auki kostnað húsbyggjenda og hægi á komu nýrra eigna á markað.
Breyta þarf um stefnu eða í það minnsta gera langtímaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið allt sem tryggi að framboð á nýju húsnæði verði í samræmi við mannfjöldaspár, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgublaðinu í dag.