Fjögur ný innanlandssmit kórónuveirunnar greindust í gær samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild. Allir fjórir voru í sóttkví við greiningu. 14 smit greindust á landamærum.
Þetta staðfestir Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri almannavarnadeildar.
Á höfuðborgarsvæðinu fór fram sýnataka í gær með hefðbundnum hætti. Engin sýnataka var á nýársdag og greindust því engin smit í gær, 2. janúar.