Nýju ári er hægt að fagna á ýmsan máta og kjósa margir að hafa heilsuna í fyrirrúmi þegar nýtt ár gengur í garð.
Nú þegar líkamsræktarstöðvar standa lokaðar vegna Covid-19 hefur landinn gripið til þess ráðs að stunda meiri útivist en áður.
Það ákváðu þessi tvö að gera nýverið en þau nutu útivistar á Gróttu líkt og margir samlandar þeirra.