Landspítali vekur athygli á því að mikið álag er núna á spítalanum, meðal annars á bráðamóttöku í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttökuna vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu.
Á bráðamóttökunni er sjúklingum núna forgangsraðað eftir bráðleika og ef kostur er vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavakt utan opnunartíma heilsugæslu.
Á tímum heimsfaraldurs Covid-19 er sérstaklega mikilvægt er að almenningur taki tillit til ofangreindra aðstæðna á bráðamóttöku, ef mögulegt er, að því er Landspítalinn segir í tilkynningu.
Hér má sjá nánari upplýsingar fyrir þá sem þurfa að leita sér læknisaðstoðar.
KVÖLD- OG HELGARVAKT LÆKNAVAKTAR
Læknavaktin í Austurveri við Háaleitisbraut er með opna móttöku alla virka daga kl. 17-23:30 og um helgar frá kl. 9-23:30.
SÍMAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN
Vert er að minna á að hjúkrunarfræðingar eru á vakt allan sólarhringinn í símum 1770 og 1700 og sinna þar faglegri símaráðgjöf og vegvísun í heilbrigðiskerfinu fyrir allt landið. Sérfræðingar hjá 1770 meta þörf fyrir þjónustu og koma hlutum í farveg.
19 HEILSUGÆSLUR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hentugan lista yfir fimmtán heilsugæslustöðvar er að finna hérna:
https://www.heilsugaeslan.is/heilsugaeslustodvar/
Einkareknar heilsugæslustöðvar eru síðan starfræktar í fjórum hverfum höfuðborgarsvæðisins og þær eru hérna:
Heilsugæslan Höfða
Heilsugæslan Lágmúla
Heilsugæslan Salahverfi
Heilsugæslan Urðarhvarfi
ÞJÓNUSTUVEFSJÁ Á HEILSUVERU
Á Heilsuveru er þjónustuvefsjá þar sem einfalt er að finna næstu heilsugæslustöð og þá þjónustu sem í boði er um land allt. Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Þar er einnig að finna öruggt vefsvæði þar sem hægt er að eiga í samskiptum við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og nálgast gögn úr eigin sjúkraskrá. Heilsuvera er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embættis landlæknis.
BRÁÐADEILD LANDSPÍTALA
Vefsvæði bráðadeildar Landspítala er hérna:
https://www.landspitali.is/sjuklingar-adstandendur/deildir-og-thjonusta/bradadeild-g2/
FRÉTT UM GÓÐA ÞJÓNUSTU OG RÚMAN OPNUNARTÍMA HEILSUGÆSLU OG LÆKNAVAKTAR
https://www.facebook.com/Landspitali/videos/1941795545934052/