Slaka á takmörkunum úr 10 í 20 manns

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áformað er að slaka á samkomutakmörkunum úr 10 manns í 20 manns þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi 13. janúar. Þetta staðfesti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra eftir ríkisstjórnarfund sem lauk núna eftir hádegi. Ná slakanirnar meðal annars til íþrótta, líkamsræktarstöðva, skíðasvæða og sviðslista.

Sagði Svandís að aðgerðirnar miðuðust við að áfram tækist að halda faraldrinum í lágmarki, en þær yrðu endurskoðaðar ef það kæmi aftur stökk.

Þá er horft til þess að heimila starfsemi líkamsræktarstöðva með miklum takmörkunum. Þannig verði bara opið fyrir hóptíma með 20 manns að hámarki.

Svandís sagði einnig að aftur yrði opnað fyrir íþróttir fyrir alla aldurshópa, bæði æfingar og keppni.

Þá sagði hún að sviðslistir yrðu aftur heimilar með allt að 50 manns á sviði og 100 áhorfendum í merktum sætum.

Samkvæmt tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins er gert ráð fyrir að ráðstafanirnar gildi frá 13. janúar til 17. febrúar. 

Helstu breytingar eru sem hér segir:

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ítarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.
  • Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými. 
  • Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.
  • Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. Andlitsgrímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra nálægðartakmörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og fullorðnir eiga að bera grímu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert