Aftakaveður er í 2. búðum fjallsins K2 þar sem fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson er nú staddur. Vindhviður í efri búðum fjallsins ná allt að 70 metrum á sekúndu.
„Veturinn hangir yfir K2. Það er útlit fyrir að hann verði hér áfram til 20. janúar,“ segir John Snorri í stöðuuppfærslu sinni á Facebook. „Á meðan erum við að safna kröftum, halda hugarfari okkar einbeittu og skapi jákvæðu fyrir næstu hækkun,“ skrifar John Snorri.
Feðgarnir Muhammad Ali Sadpara og Sajid Ali eru með John Snorra í 2. búðum, en þar hafa þremenningarnir verið síðan 29. desember.
K2 er eini tindur heims, yfir átta þúsund metrar að hæð, sem ekki hefur verið klifinn að vetri til. Ef John Snorra tekst ætlunarverkið verður hann sá fyrsti til þess að vinna það þrekvirki.
K2 er 8.611 metrar að hæð og er annað hæsta fjall heims, næst á eftir Mont Everest sem er 237 metrum hærra. John Snorri varð fyrstur Íslendinga til að klífa tindinn Lhotse í Himalajafjallgarðinum, sem er 8.516 metra hár og fjórða hæsta fjall heims.
Hann er einnig eini Íslendingurinn sem hefur klifið K2 og einn fárra í heiminum til þess enda K2 talið eitt erfiðasta fjall heims þegar klifur er annars vegar.
John Snorri er aftur á móti ekki sá eini sem freistar þess að verða sá fyrsti sem kemst á topp K2-fjallsins að vetri til. Þrír aðrir hópar reyna nú einnig við tindinn, eftir því sem fram kemur í Adventure Journal.
Ýmsir hafa reynt við hinn 8.611 metra háa topp fjallsins að vetri til án árangurs. Segir í frétt Adventure Journal að litið sé á þetta afrek sem síðasta afrekið í fjallamennsku í Himalaja-fjöllunum sem eftir eigi að vinna.