1.200 skammtar af bóluefni Moderna eru væntanlegir til landsins í fyrramálið, þriðjudag. Um er að ræða fyrstu sendingu bóluefnis frá bandaríska lyfjaframleiðandanum.
„Efnið kemur með fraktvél Icelandair Cargo frá Belgíu og við sækjum það á Keflavíkurflugvöll,“ segir Elísa Dögg Björnsdóttir, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen, í samtali við mbl.is.
Gert er ráð fyrir að flugvélin lendi á Keflavíkurflugvelli klukkan 7.40 í fyrramálið.
Fyrirtækið sér um flutning efnisins hér á landi. Bóluefnið geymist við hærri hita en Pfizer-efnið sem þarf að vera í um -70 gráðum. Bóluefni Moderna geymist hins vegar við 15-20 gráðu frost sem einfaldar flutning þess umtalsvert.
Færri skammtar eru í sendingu Moderna en voru í fyrstu sendingu Pfizer sem kom til landsins í desember. Um er að ræða einn kassa af bóluefni sem inniheldur 1.200 skammta að sögn Elísu.
Við flutninginn er notaður sérhæfður lyfjaflutningabíll í eigu TVG-Zimsen sem hannaður er út frá ströngustu kröfum um lyfjaflutninga og er sérstaklega hannaður fyrir íslenskar aðstæður.
„Við notum þennan bíl mikið í lyfjaflutningum, hann er sérhannaður og heldur hitastigi eins og það á að vera. Þetta efni á að flytjast á plús 5 gráðum, en því er pakkað þannig að hitastigið er mínus 20 í kassanum. Þetta er mun auðveldara í flutningi og geymslu en efnið frá Pfizer,“ segir Elísa.
Engin sérstök flutningsmiðlun sá um flutning á Pfizer til landsins, en TVG-Zimsen mun aftur á móti annast allan flutning á efni Moderna.
„Við munum flytja inn allt efni frá Moderna, eins og staðan er núna á að koma sending aðra hverja viku alla vega út febrúar. En það getur ýmislegt breyst í þessu,“ segir Elísa.