147 sjúkraflutningar á sólarhring

Mikið álag er í sjúkraflutningum alla daga hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Mikið álag er í sjúkraflutningum alla daga hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti 147 sjúkraflutningum síðasta sólarhringinn og af þeim voru 24 forgangsverkefni og 9 vegna Covid-19. Rólegra hefur verið á slökkvibílnum, einungis eitt minni háttar útkall. Á laugardagsmorgninum var greint frá því að sjúkraflutningarnir sólarhringinn á undan hafi verið 166 talsins og aldrei fleiri í þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins.

Mikið álag var á bráðamót­tök­unni á föstu­dag og laug­ar­dag að sögn Jóns Magnúsar Kristjánssonar, yfirlæknis bráðalækninga á Landspítala. Hann sagði í samtali við mbl.is í gær að fólk sé aftur farið að leita á bráðamót­töku með væg­ari veik­indi og slys eft­ir að slík­um kom­um fækkaði í kjöl­far frétta­til­kynn­ing­ar frá Land­spít­ala um langa bið á bráðamót­töku.

Hann hvet­ur fólk áfram til að leita til heilsu­gæsl­unn­ar eða á lækna­vakt­ina ef um er að ræða væg­ari veik­indi eða slys. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert