Sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala (11EG) fékk jákvætt svar við Covid-19-skimun um kl. 20 í kvöld.
Blóð- og krabbameinslækningadeild hefur því verið lokuð fyrir nýjum innlögnum, en er þó í fullri starfsemi. Um 30 sjúklingar og 30 starfsmenn verða skimaðir snemma í fyrramálið, á fimmtudag.
Um hádegisbil ættu fyrstu niðurstöður úr þeirri skimum að liggja fyrir. Viðkomandi einstaklingar eru ýmist í sóttkví eða vinnusóttkví B þar til þær niðurstöður berast. Samhliða hefur verið gripið til ýtrustu sóttvarnaaðgerða á deildinni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.
Ekki liggur fyrir hvernig sjúklingurinn smitaðist, en þó er talið líklegast að sjúklingurinn hafi þegar við innlögn verið smitaður. Smitrakning stendur yfir. Sjúklingurinn var lagður inn á 11EG síðdegis í gær. Skimun leiddi í ljós virkt Covid-19-smit á níunda tímanum í kvöld. Sjúklingurinn hefur verið fluttur á smitsjúkdómadeild Landspítala (A7) í Fossvogi og settur í einangrun, vegna veikinda sinna.
Sólarhringur er síðan Landspítali þurfti að grípa til svipaðs viðbragðs vegna smits sem kom upp á hjartadeild.
„Þetta eru alvarlegir atburðir í starfsemi spítalans og viðbragðið í kjölfarið því ætíð umfangsmikið og útbreitt. Aðrar deildir munu aðstoða 11EG eftir þörfum og vonir standa til þess að þjónusta spítalans við þennan viðkvæma sjúklingahóp verði órofin og hnökralaus,“ segir í tilkynningunni.