Að minnsta kosti sex manns þurftu aðstoð á slysadeild eftir að átök brustu út innan veggja Borgarholtsskóla rétt fyrir klukkan eitt í dag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að upplýsingar um meiðsli liggi ekki fyrir en rannsókn málsins er á frumstigi.
Myndband hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum af einstaklingi með hafnaboltakylfu sem veitist að nemendum og starfsfólki Borgarholtsskóla. Töluverður viðbúnaður var við Borgarholtsskóla að sögn lögreglu og var sérsveit send á vettvang. Nemendum og starfsfólki er mjög brugðið.
Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, segir atburði dagsins þá alvarlegustu sem upp hafa komið í íslensku menntakerfi. Hann fundaði með starfsfólki skólans eftir atburðarásina og veitti mbl.is viðtal í kjölfarið. Að hans sögn eru þeir sem standa að baki árásinni ekki nemendur skólans.
„Það eru að sjálfsögðu bara allir hér í áfalli eftir svona árás,“ segir Ársæll spurðum um líðan starfsmanna og nemenda.
„Já, ég hef verið hátt í 30 ár í framhaldsskólum og ég held að þetta sé það alvarlegasta sem hefur komið upp gagnvart þessari íslensku lýðræðishefð og bara ungu fólki almennt.“
Ársæll bætir við að skólanum hafi verið lokað eftir að nemendur voru sendir heim. Hins vegar opnar skólinn að nýju á morgun samkvæmt stundaskrá svo halda megi skólastarfi áfram. Boðið verður upp á áfallahjálp.
Ebba Magnúsdóttir, nemandi í Borgarholtsskóla, sagði við mbl.is fyrr í dag að hún hafi verið hrædd og að mikið hafi gengið á.
„Við vorum bara inni í stofu í hádegismat og þá sáum við strák sem labbaði fram hjá stofunni okkar fram og til baka og hann var blóðugur. Ég frétti að það hafi verið eftir að ljósaperu var kastað í hausinn á honum. Stuttu seinna fylltist allt af lögreglumönnum,“
„Nemendum var gert að sitja inn í stofum og var verið að rýma alla ganga. Okkur var svo hleypt út í hollum og gert að fara heim þar sem allir tímar falla niður eftir hádegi. Þá voru lögreglur með skjöld og sérsveitin var þarna og mikið af lögreglum, sjukrabílum og slökkviliðsbílum,“
„Það voru náttúrulega allir mjög forvitnir um það sem var að gerast en svo voru líka allir mjög hræddir, sendu vinum sínum skilaboð og spurðu hvort það væri allt í lagi.“