Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nú með umtalsverðan viðbúnað við Borgarholtsskóla vegna átaka sem áttu sér stað þar. Sex hafa verið fluttir á slysadeild vegna þeirra. Sérsveitin er á svæðinu. Samkvæmt heimildum mbl.is er um stunguárás að ræða.
Um klukkan 13 í dag barst lögreglu tilkynning um átökin. Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að tilkynnt hafi verið um einhvern vopnaburð, m.a. hafnaboltakylfu.
„Það eru einhvers konar átök að eiga sér stað, ekki ljóst með hvaða hætti. Við erum búin að flytja fjóra á slysadeild og málið er í rannsókn,“ segir Elín Agnes Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að lögreglan sé með fulla stjórn á vettvangi en það sé skólans að ákveða hvort nemendur og starfsfólk verði sent heim.
„Það er búið að gera skólann öruggan. Við erum með fulla stjórn á vettvangi og erum komnir með flesta þá aðila sem áttu þarna hlut að máli,“ segir Ásgeir.
Ekki er mögulegt að greina frá áverkum hinna slösuðu að svo stöddu.
Elín segir marga lögreglumenn, rannsóknarlögreglumenn og sjúkraflutningamenn á svæðinu.
Vísir greindi fyrst frá.
Fréttin hefur verið uppfærð