Í kjölfar þess að Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, tilkynnti í gær að hann byði sig fram til að leiða lista Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi norður hafa þrjú tilkynnt um framboð til að leiða listann í Norðvestur kjördæmi.
Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, hafði áður tilkynnt að hún sæktist eftir endurkjöri í annað sæti listans. Við breyttar aðstæður hefur hún nú tilkynnt um að hún sækist eftir 1.-2. sæti á listanum.
Í dag kviknar nýtt tungl, nýtt upphaf, og þá er upplagt að taka nýjar ákvarðanir. Nú hefur Ásmundur Einar tilkynnt að...
Posted by Halla Signý Kristjánsdóttir on Wednesday, 13 January 2021
Stefán Vagn Stefánsson, sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknar í Skagafirði, hafði áður boðið sig fram á móti Höllu Signýju í 2. sæti á lista en sækist nú eftir 1. sæti.
Kæru vinir. Í ljósi yfirlýsingar Ásmundar Einars Daðasonar félags- og barnamálaráðherra um að gefa kost á sér í 1....
Posted by Stefán Vagn Stefánsson on Wednesday, 13 January 2021
Guðveig Eyglóardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknar í Borgarbyggð, tilkynnti í gær að hún sæktist eftir 1.-2. sæti á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosingar.
Heil og sæl kæru félagar, ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 1. – 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í...
Posted by Guðveig Eyglóardóttir on Wednesday, 13 January 2021