Skimun á landamærum skylda

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag. Í ljósi alvarlegrar stöðu faraldursins víða um heim verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og 5-6 daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí.

Þá verða tekin varfærin skref til afléttingar sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

„Það er mat sóttvarnalæknis að hætt sé við því að smit leki gegnum varnir á landamærum, einkum hjá þeim sem velja 14 daga sóttkví í stað sýnatöku. Það er sérlega brýnt nú að stemma stigu við slíku vegna þeirrar fyrirsjáanlegu og afmörkuðu hættu sem stafar af nýju afbrigði veirunnar sem ítrekað hefur greinst hjá sýktum einstaklingum á landamærum,“ segir í tilkynningu.

„Gjaldfrjáls skimun hefur ekki leitt til þess að fækkað hafi nægjanlega í hópi þeirra sem velja 14 daga sóttkví í stað skimunar. Heilbrigðisráðherra hefur því ákveðið að setja reglugerð þar sem sýnataka verður gerð að skyldu. Ekki verður hægt að velja sóttkví í stað sýnatöku nema í algerum undantekningartilvikum, s.s. af læknisfræðilegum ástæðum,“ segir þar einnig.

Komufarþegar sem geta framvísað gildu vottorði sem sýnir fram á að Covid-19 sýking sé afstaðin eru áfram undanþegnir sóttvarnaaðgerðum á landamærum og það sama mun gilda um komufarþega sem geta framvísað gildu bólusetningarvottorði.

Vonir standa til þess að á næstu mánuðum muni bólusetning smám saman draga úr þeirri hættu sem af faraldrinum stafar samhliða því sem sóttvarnaaðgerðum ríkja verður áfram beitt til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Því verður fyrirkomulag sóttvarna á landamærum endurskoðað mánaðarlega og þá einkum til rýmkunar, eftir því sem aðstæður leyfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert