Þrennt var í bílnum sem hafnaði í sjónum í Skötufirði á ellefta tímanum í morgun. Slysið er alvarlegt en unnið er að því að veita þeim aðstoð á vettvangi. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar eru að lenda á slysstað.
Samhæfingarmiðstöð almannavarna var virkjuð vegna slyssins en tilkynning barst um umferðarslys vestan megin í Skötufirði klukkan 10:20. Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir að bíllinn hafi farið út af veginum og endaði úti í sjó þar sem hann hafnaði á hliðinni. Aðstæður á slysstað eru mjög erfiðar, bæði mikil hálka og eins bíllinn í sjónum.
Hann segir að vegfarendur sem komu að slysinu hafi unnið þrekvirki við að hjálpa til við að bjarga þeim úr sjónum og hlú að þeim áður en viðbragðsaðilar komu á staðinn.
Ástand á vettvangi er að sögn Rögnvalds orðið stöðugt en aðstoð barst úr lofti, láði og legi þar sem bæði þyrlur, björgunarskip, björgunarsveitir, lögregla, slökkvi- og sjúkralið hafi tekið þátt í björgunarstarfinu við erfiðar aðstæður.
Uppfært - tilkynning frá lögreglu klukkan 12:16
Tilkynning barst til lögreglunnar á Vestfjörðum klukkan 10:16 um alvarlegt umferðarslys á Djúpvegi í vestanverðum Skötufirði. Fjölmennt lið lögreglu, sjúkraflutninga og lækna, slökkviliðs og björgunarsveita var sent á vettvang auk þess sem tvær þyrlur Landhelgisgæsunnar voru kallaðar út og sendar á vettvang. Þá var samhæfingarstöð í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð virkjuð.
Í fyrstu upplýsingum kom fram að bifreið hefði fari útaf veginum og í sjóinn og að þrennt hafi verið í bílnum. Vinna viðbragðsaðila er í gangi á vettvangi og báðar þyrlurnar komnar á staðinn. Búið er að ná fólkinu í land og komið í sjúkrabíla.
Samkvæmt upplýsingum er flughálka á veginum, lágskýjað og hægur vindur.