Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig handleggi á sjúkrahúsi í Lyon í Frakklandi fyrir fimm dögum, hitti í dag æðaskurðlækni í fyrsta skipti eftir aðgerðina. Læknirinn staðfesti blóðflæði í öllum fingrum Guðmundar.
Greint er frá þessu á facebook-síðu Guðmundar í kvöld.
Þar segir enn fremur að blóðflæði sé gott og allt líti vel út.
Guðmundur Felix missti báða handleggi í slysi árið 1998. Þetta er í fyrsta sinn sem svo flókin aðgerð er framkvæmd en hendur voru græddar á Guðmund að öxlum meðtöldum.
Aðgerðin tók 14 klukkustundir og sá sitt hvort teymi lækna um annars vegar ágræðsluna og hins vegar um að fjarlægja handleggi af gjafanum.