Vinstri græn í Reykjavík ákváðu einróma á félagsfundi í kvöld að viðhafa rafrænt forval fyrir komandi Alþingiskosningar 25. september.
Reykjavíkurkjördæmi heldur sameiginlegt forval fyrir bæði kjördæmin og kosið verður í átta efstu sætin, sem þýðir fjögur efstu í hvoru kjördæmi, Reykjavík norður og Reykjavík suður, að því er fram kemur í tilkynningu.
Áður höfðu Vinstri græn í Norðausturkjördæmi, Suðurkjördæmi og Suðvesturkjördæmi ákveðið forval, svo þetta er fjórða kjördæmið, þar sem VG velur forval sem aðferð.
Kjörstjórn var kosin á fundinum sem fær það verkefni að skipuleggja og útfæra forvalið. Forvalið stendur í nokkra daga og hægt verður að kjósa hjá skrifstofu VG fyrir þá sem það vilja.