Lést eftir hjólreiðaslys

mbl.is

Karlmaður á sjötugsaldri lést á Landspítalanum gær, en maðurinn féll af reiðhjóli á göngustíg í Seljahverfinu í Breiðholti á laugardagsmorguninn.

Tilkynning um slysið barst lögreglu á níunda tímanum á laugardagsmorgun og var maðurinn fluttur á slysadeild. Hann lést á spítalanum í gær. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu er ekki hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert