Hátt í 400 manns hafa skráð sig til þátttöku á Nýsköpunardegi hins opinbera sem verður haldinn í annað sinn á fimmtudaginn.
Fulltrúar heilsugæslunnar og embættis landlæknis munu meðal annars segja frá því hvernig tekið var stafrænt heljarstökk sem gerði á skömmum tíma kleift að auka getu til sýnatöku úr 100-200 sýnum á dag í um 2.000 sýni.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Á deginum verður rætt vítt og breitt um áhrif Covid-19 á starfsemi hins opinbera og opinbera þjónustu og jákvæða lærdóma sem draga má, sem fela ekki síst í sér aukna samvinnu og nýtingu stafrænna lausna, segir í tilkynningunni. Sagt verður frá myndun viðbragðsteyma til að tryggja þjónustu við viðkvæma hópa í faraldrinum og hvernig Reykjavíkurborg virkjaði mannauð sinn á erfiðum tímum og starfsfólk borgarinnar tókst á við nýjar áskoranir.
Dagskráin fyrri hluta dags samanstendur af fræðslu og reynslusögum opinberra aðila en eftir hádegið er hver og einn vinnustaður hvattur til að skipuleggja nýsköpunardagskrá hjá sér ásamt því að Nýsköpunarmolar ólíkra stofnana verða í boði. Þar kennir margra grasa og mun Framkvæmdasýsla ríkisins m.a fjalla um verkefnamiðað vinnuumhverfi og skipulag vinnustaða hjá ríkinu til framtíðar.