Teitur Björn Einarsson, lögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, gefur kost á sér fyrir næstu þingkosningar og sækist eftir þingsæti í kjördæminu.
„Ég hef verið svo lánsamur að vinna með fjölda fólks um allt kjördæmið að góðum málum og fagnað með því ýmsum merkum áföngum. En róðurinn hefur líka víða verið þungur,“ skrifar Teitur Björn á Facebook-síðu sinni.
Í tilkynningu frá Teiti segir að hann sé 40 ára Flateyringur, búsettur í Skagafirði með eiginkonu sinni Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra Landssambands kúabænda og börnum þeirra tveimur.
Hann sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi kjörtímabilið 2016-2017, er fyrsti varaþingmaður flokksins í dag og leiddi m.a. starfshóp um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri í kjölfar snjóflóðanna í upphafi síðasta árs. Þá situr hann í stjórn Menntasjóðs námsmanna. Í dag starfar hann sem lögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni með starfsstöð í Skagafirði.
„Meginverkefnið framundan verður að svara spurningunni hvernig við aukum lífsgæði og búum til meiri verðmæti þannig hægt sé að treysta afkomu fólks og fjölga atvinnutækifærum í byggðum landsins,“ skrifar Teitur meðal annars á Facebook.
Kæru vinir, ég hef töluvert verið spurður út í framboðsmál að undanförnu og segi frá því nú að ég hef ákveðið að gefa...
Posted by Teitur Björn Einarsson on Tuesday, January 19, 2021