Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu mun ná um 400-500 fleiri skömmtum upp úr þeim bóluefnaglösum sem hún hefur nú til umráða með nýjum búnaði sem barst til landsins í vikunni. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir það fagnaðarefni og í raun „alveg frábært“.
Bólusetning hrumra eldri borgara sem eiga erfitt með að mæta á heilsugæslustöð, svo sem þeir sem njóta þjónustu dagdvala, dagþjálfunar og heimahjúkrunar fá bólusetningu með bóluefni Pfizer/BioNTech í dag.
„Við ætlum að reyna að byrja á öllum sem eru eldri og hrumir og komast þar af leiðandi ekki til okkar. Næst fá þeir sem komast til okkar boð,“ segir Ragnheiður.
Hver einstaklingur þarf tvær sprautur af bóluefninu með nokkurra vikna millibili til þess að öðlast vernd gegn Covid-19. Fyrstu bólusetningarnar hérlendis voru framkvæmdar á milli jóla og nýárs og er því kominn tími á fyrstu seinni bólusetninguna. Hún hefst hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á morgun.
Ragnheiður segir viðbúið að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins nái að bólusetja flestalla eldri borgara sem eiga erfitt með að koma á heilsugæslu í vikunni. Með næsta bóluefnaskammti sem berst verði þá eldri borgarar sem geta mætt á heilsugæslu bólusettir. Bóluefnaskammtar berast hingað til lands vikulega frá Pfizer og á tveggja vikna fresti frá Moderna.