Jeffrey Ross Gunter, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, hefur látið af störfum en hann greinir frá því í ávarpi á facebook-síðu sendiráðsins. Þar þakkar hann meðal annars Donald Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, fyrir „ótrúlegt tækifæri“.
Gunter segist hafa myndað tengsl við íbúa og ríkisstjórn Íslands og þannig hafa náð mörgum af sínum markmiðum.
„Guð blessi ykkur öll og takk Trump forseti fyrir þetta ótrúlega tækifæri,“ sagði sendiherrann í kveðjuávarpinu.
Gunter tók við embætti sendiherra í júlí 2019 en þá hafði staðan verið laus frá janúarmánuði 2017.
Gunter er menntaður húðlæknir og hafði starfað sem slíkur í yfir aldarfjórðung. Hann hefur einnig tekið þátt í störfum repúblikanaflokksins og verið formaður bandalags gyðinga innan flokksins.
Hann var talsvert gagnrýndur síðastliðið sumar þegar sendiherrann endurtísti skilaboðum frá Trump þar sem fjallað var um baráttu við „ósýnilega Kínaveiru“.
Enn fremur fjallaði bandaríska fréttastöðin CBS ítarlega um Gunter þar sem hann var meðal annars sagður vilja bera skotvopn enda teldi hann öryggi sínu ógnað hér á landi.