Álfheiður Eymarsdóttir, varaþingmaður Pírata í Suðurkjördæmi, gefur kost á sér til að leiða lista Pírata í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Álfheiður er fædd á Höfn í Hornafirði en er nú búsett á Selfossi og er varabæjarfulltrúi í Árborg.
Álfheiður er menntaður stjórnmálafræðingur, situr í stjórn RARIK og hefur m.a. starfað sem embættismaður hjá Reykjavíkurborg og rekið sitt eigin fiskverkunar- og úflutningsfyrirtæki.