Söngkonan Þóra Einarsdóttir hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli hennar gegn Íslensku óperunni, en fyrir tveimur vikum var óperan sýknuð af kröfum Þóru um greiðslu á vangoldnum launum.
Málið snýr að verkinu Brúðkaup Fígarós sem Íslenska óperan frumsýndi í september 2019. Nokkrir söngvarar kvörtuðu undan því sem þeir sögðu óhóflegu vinnuálagi og leituðu til stéttarfélags vegna þess.
Þóra kveðst vera meðlimur í FÍH, Félagi íslenskra hljómlistarmanna, og vísaði af þeim sökum í kjarasamning FÍH við Óperuna.
Óperustjóri sagði hins vegar að kjarasamningur Íslensku óperunnar og FÍH hafi aðeins gilt þegar söngvarar voru fastráðnir við óperuna, sem þeir eru ekki lengur.
Í tilkynningu frá Þóru segir að málið hafi fordæmisgildi fyrir aðra listamenn og íslenskan vinnumarkað í heild sinni og að FÍH standi á bak við hana í málinu.
„Það er mat mitt, BÍL, FÍH og lögmanna okkar að dómur héraðsdóms sé rangur í öllum meginatriðum. Í honum felast alvarleg tíðindi fyrir allt listafólk sem semur um kaup sín og kjör fyrir einstök verkefni við listastofnanir sem m.a. njóta opinbers fjárframlags. Í dóminum kemur fram að þrátt fyrir gildandi kjarasamninga milli stéttarfélaga og listastofnana sé heimilt að greiða listamönnum minna en lágmarkskjör samkvæmt gildandi kjarasamningum. Dómurinn gengur þvert á þá lögfestu meginreglu vinnuréttar að samningar um lakari kjör en kveðið er á um í kjarasamningum séu að engu hafandi. Þá telur dómurinn að allan vafa um hvað greiða skuli samkvæmt samningum skuli túlka listamanninum í óhag,“ segir Þóra í tilkynningunni.
Segir hún dóminn reka „fleyg í samstöðu listafólks“ sem leitast hafi verið við að skapa með því að stofna stéttarfélög til að semja um lágmarkskjör. Segir hún jafnframt að listastofnanir séu í yfirburðaaðstöðu þegar komi að því að semja við listamenn. Segir hún óhjákvæmilegt að fá úr því skorið fyrir æðri dómstól hvort grundvallar réttur um að kjarasamningar um lágmarkskjör séu virtir, eða hvort hann hafi verið afnuminn.