Mikið hefur bætt á snjó víða á Norðurlandi síðasta sólarhringinn. Ekki hefur verið tilkynnt um snjóflóð frá því að síðustu flóð féllu á Öxnadalsheiði í gærkvöldi, en ekki er hægt að útiloka að fleiri flóð hafi fallið þar sem vegir eru lokaðir og fáir á ferli.
Frá þessu segir í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglunni á Norðurlandi vestra.
Bent er á að mörg snjóflóð hafi fallið síðan á mánudag, þar af nokkur stór.
Spáð er áframhaldandi norðan hvassviðri með éljum og snjókomu, a.m.k. fram á sunnudag, og áfram er búist við mikilli snjóflóðahættu. Næsti stöðufundur vegna rýmingar á Siglufirði verður á morgun, sunnudag klukkan 16.
Helstu leiðir Norðanlands eru ófærar en athugað verður með mokstur í fyrramálið, að því er segir í tilkynningunni.
Áfram er þá í gildi hættustig Veðurstofu Íslands vegna snjóflóðahættu og rýming á húsum á Siglufirði, auk óvissustigs vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi.
Fyrr í dag voru hús rýmd á Flateyri.