Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt fyrir klukkan sjö í morgun vegna vatnsleka í fyrirtæki í Fellsmúla. Svo virðist sem hitarör fyrir hitablásara hafi gefið sig og hafði talsvert magn af heitu vatni lekið.
Að sögn slökkviliðsmanns var talsverð gufa á staðnum og um 2 cm vatn sem hafði farið yfir verslunina. Slökkviliðsmenn eru enn á vettvangi við að dæla vatninu út.