Björgunarsveitir voru kallaðar út þegar tilkynning barst um bílveltu í grennd við Námaskarð um klukkan fimm í dag.
Komust bílstjóri og farþegar úr bílnum af sjálfsdáðum og slasaðist enginn að sögn Davíðs Más Bjarnasonar upplýsingafulltrúa Landsbjargar.
Kallað var á björgunarsveitirnar þar sem langt var í næstu viðbragðsaðila en lögreglan og sjúkrabílar komu á vettvang skömmu seinna.
„Það fór betur en á horfðist, allir komust út úr bílnum óslasaðir,“ sagði Davíð í samtali við mbl.is.
Athugasemd - sett inn klukkan 9:05 25. janúar.
Bíllinn valt skammt austan við Námaskarð, við vestari brekku, ekki í grennd við Dettifoss líkt og kom fram í frétt mbl.is í gær að sögn manns sem kom á slysstaðinn í gær. Fjölskyldan sem var í bílnum fékk aðstoð við að komast út úr bílnum en lögregla kom fljótt á vettvang þar sem hún var við eftirlit við Jökulsá á Fjöllum vegna þess að það flæðir vatn og krapi yfir veginn.